febrúar 9, 2007
· Flokkað undir átakið
Það var alveg geggjaður tíminn í ræktinni í gær. Hellingur af nýjum sporum með skemmtilegum snúningum og slaufum og líka bara nokkuð góð tónlist. Það munar svo miklu að vera ekki alltaf að gera það sama. Ég fæ fljótt leið á æfingunum ef þær verða bara eins og einhver rútína sem maður hefur gert þúsund sinnum. Tónlistin þarf líka að vera góð og hátt stillt svo stuðið verði algjört. Það tókst í gær.
í dag ætla ég að fara í mjög erfiðan hjólatíma þar sem hjólað er stanslaust í 60 mínútur misþungt og mishratt við misgóða tónlist. Þessir tímar eru samt svakalegir stuðtímar og mjög skemmtilegir og ég er alltaf alveg búin á því eftir þá. Á morgun er svo tími klukkan 9:00 í fyrramálið og þá er líka vigtun. Þetta er strembið prógram svona í lok viku en svo er frí á sunnudaginn og þá næ ég að hvíla mig vel.
Ég er ekki búin að detta í nammið ennþá. Ætla að hafa nammidag á laugardaginn og sé þá til hvort að mig langi í allt þetta sem ég er búin að vera upptekin að hugsa um síðustu daga. Yfirleitt hef ég ekki nammidag heldur fæ mér bara það sem mig langar í þegar mig langar í það en núna uppá síðkastið hefur mig langað annsi mikið í og hef því verið í nammibremsu.
Takk fyrir commentin þið sem kíktuð :o)
febrúar 8, 2007
· Flokkað undir átakið
Hæ þið sem lesið, ef einhver..
Er að fara í leikfimi í dag. Seinnipartinn. Þessa dagana fer ég 3-5 sinnum í viku. Fer fjórum sinnum í þessari viku og er búin með eitt skipti. Fór í leikfimi á þriðjudaginn. Þá var stöðvaþjálfun og ég tók sko vel á því. Prófaði í fyrsta skipti nýjan bol sem ég keypti mér um síðustu helgi. Þröngur hlýrabolur! Já gott fólk, ég var í þröngum hlýrabol! Mjög gott að vera í honum, verður ekki rennblautur af svita eins og bómullarbolir verða. Ég er líka algjör pæja í honum. Í tímannum á eftir þá verður brennsla á pöllum og hlakka ég mikið til. Það er alltaf svo góð stemning og mikið stuð í þessum tímum enda er þetta frábær hópur!
Mataræðið gengur líka bara vel. Er búin að vera sjúk í nammi og allskonar gotterí síðustu daga en hef getað setið á mér hingað til allavega. Ætla að hafa nammi dag á laugardaginn eftir vigtun og þá má ég fá mér allt sem mér er búið að langa í undanfarna daga.. spurning hvort mig langi nokkuð í það þá ;)
febrúar 5, 2007
· Flokkað undir átakið
Já ég er sko komin aftur í blogggírinn og hvað eru mörg g í því??
Ég er á tímamótum í mínu átaki. Á laugardaginn vigtaði ég mig og ég er formlega orðin sjötíuogeitthvað kíló!!
Einhvernveginn þegar ég byrjaði í þessu og ákvað að nú skyldi ég nú taka mig á þá sá ég þennan dag ekki fyrir mér. Ég sá mig ekki fyrir mér takast þetta. Komast svona langt. Þannig að þegar ég gekk út úr ræktinni á laugardagsmorguninn þá leið mér alveg ótrúlega skringilega. Svona eins og ég væri alveg að springa úr hlátri en gæti ekki hlegið. Eins og eitthvað frábært væri búið að gerast en ég kunni bara ekki að bregðast við því. Svo kom ég heim og kærastinn minn spurði mig hvernig hefði farið og þá fór ég bara að grenja af gleði! heheheh ótrúlega fyndið.
Ég ákvað samt að á þessum tímamótum þyrfti ég örugglega meiri hjálp við að halda einbeitingunni. Þessvegna er ég að blogga. Ég held að núna þegar mér finnst ég ekki lengur vera feit og er komin í nokkuð gott líkamlegt form þá sé hættara við því að ég fari að slaka á. Ég á ennþá eftir nokkur kíló í upprunalegt markmið. Það var samt alltaf soldið loðið hvað ég ætlaði að vera mörg kíló, enda hefur það aldrei verið aðalmarkmiðið að komast í einhverja tölu. Það kemur í ljós. Gott líkamlegt form og heilbrigt mataræði er aðalvinningurinn og nýi lífstíllinn minn.
Allavega, ég er komin aftur og ég vona að ég eigi eftir að lokka hingað nokkra lesendur til að fylgjast með mér og hjálpa mér við að halda mér á beinu brautinni!
september 14, 2006
· Flokkað undir átakið
já já.. ég er alveg að standa mig í blogginu. hef bara ekki fundið mikla löngun eða þörf í að blogga. skil þetta ekki alveg (?)
Hefur bara gengið vel síðustu viku. Svakalegt stuð í ræktinni og harðsperrur hafa ekki látið sig vanta síðan ég byrjaði.. en það er bara gaman. Er að taka vel á því. Mataræðið gengur líka bara mjög vel. Fer í leikfimi á eftir og fer þá í fitumælingu. Það verður spennandi að sjá hver fituprósentan er núna miðað við hvað hún var fyrir ári síðan þegar ég var fitumæld síðast. Ég ummálsmældi mig líka um daginn og bar saman við fyrir ári og þá kom í ljós að alls voru farnir af mér 47 cm! Mældi yfir brjóst, upphandlegg, mitti, mjaðmir og læri og mér fannst þetta bara svakaleg minnkun. Bara yfir mjaðmir voru farnir 20 cm! Ég fékk bara smá sjokk.. ég er hverfandi kona! gone with the wind… hehehe :)
Uppfært: Sjokkið heldur áfram! Fitumælingin kom mjög vel út. Fyrir ári síðan var ég í 47% en er í dag komin niður í 35,1% jibbý!! bjóst ekki við svona miklu. Er í skýjunum með þetta. Léttingur vikunnar var 800 grömm sem ég er mjög ánægð með líka.. jibbý!!
september 6, 2006
· Flokkað undir átakið
Er vakandi ennþá!
Er að sjálfsögðu að fara að horfa á Magna rokka. Er svaka spennt..
Byrjaði í Betra form námskeiði í dag (þriðjudag). Það var svaka stuð. Systir mín er með mér í þessu og við skemmtum okkur mjög vel og tókum á því. Hlakka til að halda áfram. Ég var bara svaka góð. Hélt mér greinilega vel við í sumar með stafgöngunni. Er líka byrjuð að skrá niður matardagbók. Það er alltaf jafn mikið spark í rassinn.. Það gefur manni einhvernveginn svo allt öðruvísi aðhald þegar maður skrifar þetta niður og sér þetta bara svart á hvitu hvað maður borðar. Það er svo auðvelt að gleyma þegar maður er búin að kyngja.. fattið þið?
En allavega.. Magni. Djöfull er hann að rokka maðurinn!
september 4, 2006
· Flokkað undir átakið
Jibbý!!
loksins komin heim til mín :)
Byrja á líkamsæktarnámskeiðinu í kvöld en þá er fyrirlestur næringarfræðings og svo leikfimi á morgun! Hlakka svaka til. Er ekki búin að vera neitt að standa mig í mataræðinu síðustu nokkra daga. Ætli ég hafi ekki verið að taka út einhverja óhollustu áður en ég byrja af krafti á námskeiðinu. Það er nú bara eðlilegt.. já já.. mikið er nú yndislegt að vera komin heim í kotið mitt :)
ágúst 27, 2006
· Flokkað undir átakið
já ég er sko ekki búin að liggja í leti í dag!
Skellti mér í stafgöngu áðan. Tók verulega á því enda gangan öll upp í móti, upp gamlan fjallveg. Mjög skemmtileg ganga og rosalega fallegt útsýni. Eftir að niður var komið skellti ég mér í sundlaugina. Það var samt meira af neyð en áhuga því sturtan hérna er biluð. En það var mjög notalegt að slaka á heitu pottunum eftir gönguna.
Mataræðið er búið að vera fínt síðustu daga, fyrir utan gærdaginn þegar ég fór í afmæli. Þar var boðið uppá svo glæsilegar kræsingar að ég fékk þær ekki staðist.. og langaði ekkert til að standast þær :o) Borðaði ekkert á mig gat, fékk mér bara lítið af hverju. Það er alveg liðin tíð að ég borði mig það sadda að mér líði hreinlega illa af. Ég er ekki hömlulaus eins og ég var einusinni. Sem betur fer… batnandi konum er best að lifa, ekki satt :o)
ágúst 24, 2006
· Flokkað undir átakið
Bróðir minn kom heim frá Belgíu í gær og keypti auðvitað helling af nammi í fríhöfninni. Borðaði soldið af því með honum í gærkvöldi. úbbs.. borðaði ekkert svakalega mikið. hefði örugglega einhverntíman misst mig ofaní nammiskálina en ég fór nú soldið pent í þetta núna.
Fyrir utan þetta smá hliðarspor er ég búin að vera mjög dugleg að halda mig frá óhollustunni. Er bara mjög ánægð með það. Er samt orðin ansi óþolinmóð að bíða eftir að byrja á fullum krafti í þessu.. hlakka mjög mikið til að fara heim.
Takk til ykkar sem nennið að lesa þetta og kommenta hjá mér, það er æðislegt að lesa það sem þið skrifið og mér finnst mjög gott að vita að einhver er að fylgjast með mér. Það gefur hellings aðhald. Gaman líka að fylgjast með ykkur.
Hafið það gott :)
ágúst 21, 2006
· Flokkað undir Átakstenglar
Aaaahh… Þvílík og önnur eins veðurblíða búin að vera undanfarna viku. Algjörlega yndislegt veður! Fínt að fá svona veðurblíðu áður en vetrar rútínan fer af stað.
Annars er allt fínt að frétta af mér og mínu. Lífið gengur sinn vanagang og ég hlakka til að komast heim til mín til þess að geta ýtt átakinu mínu aftur á fullt skrið. Ég ætla að byrja á því að skrá mig í námskeið hjá hreyfingu. Ég hef farið á svoleiðis námskeið áður, síðasta haust, og mér fannst það alveg frábær og ég var mjög dugleg. Það kom mér virkilega í rétta gírinn þá og ég vona að svo verði líka núna. Það er mikið aðhald í þessum námskeiðum og nauðsynlegt að hafa einhvern stað og tíma til að mæta á svona rétt á meðan maður er að komast í gang. Það er sko lesið upp í hverjum tíma og eins gott fyrir mann að skrópa ekki! Agi er það sem maður þarf og agi er það sem maður fær. Mér finnst líka best að vikta mig alltaf i ræktinni. þessvegna verða ekki birtar neinar formlegar tölur fyrr en námskeiðið byrjar. Enda er ég ekki að missa nein kíló þessa dagana, meira svona nokkur grömm. En ég er alveg sátt svo lengi sem það bætist ekki á. Ég hef verið mjög dugleg hingað til að halda því sem ég hef náð. Aldrei, í heilt ár, hefur talan farið upp! Húrra fyrir því (og 7-9-13)
ágúst 19, 2006
· Flokkað undir átakið
jæja, ég er búin að jafna mig í maganum eftir átökin um daginn. Fór allt í mínus. Matarlystin er alveg komin á fullt swing, eiginlega aðeins of mikið. Líkaminn vill greinilega eitthvað bæta upp næringarleysið undanfarna daga. Ég hef samt verið dugleg að gefa honum bara eitthvað holt og gott. hef ekki dottið í neitt sukk sem betur fer :)
Ég hlakka mjög mikið til þegar ég get farið að elda handa sjálfri mér aftur. Ég er búin að vera úti á landi að vinna í allt sumar og ekki í aðstöðu til að elda ofan í sjálfa mig. Ég fæ mjög góðan mat samt og alls ekkert óhollan en auðvitað er alltaf eitthvað sem ég myndi gera öðruvísi ef ég væri að elda sjálf. Ég fer heim í lok mánaðarins og þá get ég farið að gera þetta almennilega. Ég hlakka svo tiiiil!!!!! Úff hvað það er erfitt að vera ekki heima hjá sér í langan tíma. Sakna auðvitað kallsins míns mest…….. ég er ekki þessi long-distance-relationship-type-of-girl ég er meira svona hands on :)
Góða menningarnótt