Átakið mitt

Fyrir akkúrat ári síðan, eða í byrjun september 2005, þá tók ég stóra ákvörðun. Ég ákvað að þegar ég yrði þrítug þá ætlaði ég að vera 33 kílóum léttari. Fara úr 103kg niður í 70kg án þess að fara í megrun. Í dag þegar þetta er skrifað, um það bil ári síðar er ég orðin 87kg. Búin að léttast um 13kg. Þennan tíma hef ég breytt mjög miklu í sambandi við hugarfar mitt varðandi heilsuna, mataræði og hreyfingu. Ég hreyfi mig mikið meira núna en ég gerði og borða mun fituminni mat og minni skammta en ég gerði. Það er stór breyting frá því sem var hérna í den…

Það sem mér finnst skemmtilegast við þetta allt saman er öll hreyfingin. Ég er mikið íþróttafrík þó ég kanski beri það ekki utan á mér allan daginn. Mér finnst svo gaman að vera í betra formi, geta gengið og jafnvel skokkað einhverjar vegalengdir án þess að deyja bara. Svo hef ég líka uppgvötað stafgöngu. Hún er mjög skemmtileg og gerir alveg helling fyrir mig. Líkamlega formið skiptir mig mun meira máli en einhver kílóa tala og mun ég einbeita mér mest að því að komast í enn betra form.. og þá fjúka kílóin væntalega í leiðinni.. eða kanski ekki fjúka heldur hægt og sígandi láta sig hverfa. Þið fattið hvað ég meina

Ég hef ekkert bloggað um átakið mitt hingað til en hlakka til að gera það framvegis. Þó svo að það sé að mestu mér til skemmtunar þá er það líka ætlað til að halda mér við efnið. Ég ætla sko ekki að klikka á þessu á endasprettinum!

Afmælisdagurinn minn er fjórði júní. Ég ætla að halda geggjaða veislu og kaupa mér æðislegan kjól og vera svakaleg skutla!

Say your words