Endalausa kvefið

Það virðist ætla að vera ómögulegt að ná úr mér afgangnum af flensunni. Mér er nú eiginlega batnað, ekki með hita eða hálsbólgu, en kvefið ætlar ekki að fara neitt. Er búin að vera stífluð núna á þriðju viku og er ekki mjög glöð með það..
Það gengur allt annars sinn vanagang. Var vigtuð fyrir viku og hafði þá staðið í stað. Reikna ekki með að ég verði farin neitt niður þegar ég vikta mig á morgun. Einhvernveginn er ég eitthvað stöðnuð eftir að hafa lést um kíló á viku þrjár vikur þar á undan. Ég er svosem ekkert óánægð með það fyrst ég er ekki að þyngjast neitt. Byrja í nýrri vinnu á mánudaginn. Er nett stressuð yfir því. Líka yfir því hvernig mér tekst til að halda mataræðinu og að fara í ræktina. Æh, það er alltaf smá erfitt þegar rútínan breytist hjá manni og maður þarf að finna nýjan takt.. Hafið það gott um helgina dömur!

3 svör hingað til »

  1. 1

    Assa (Auður) sagði,

    Gángi þér vel vinan í nýju vinnunni og láttu þér batna :)
    Góða helgi

  2. 2

    Elsa Hlín sagði,

    Farðu nú að koma með fréttir af þér dúllan mín, gengur ekki vel í nýju vinnunniGóða helgi og gangi þér vel
    knús og kveðja

  3. 3

    Elsa Hlín sagði,

    Nú var ég að rugla þú ert með nýjar fréttir, er sennilega að blogga hjá of mörgum Haha………ég er búin að stoppa oft á frú Vikoríu hafðu engar áhyggjur
    af því, það herðir bara í manni
    bless dúllan mín


Ummæli RSS · TrackBack URI

Say your words