Archive for mars, 2007

Þreytt

jæja, nú er ég opinberlega hætt að vera kvefuð. Þótt fyrr hefði verið. Snýtti mér bara einu sinni í morgun og svo bara ekki neitt meir í dag! Skemmtilegar upplýsingar, ég veit :-)

Hjá mér gengur bara allt í haginn. Var í geggjuðum tíma í ræktinni áðan, sem heitir þrek. Er það sama og body pump en heitir þrek í minni rækt. Ég er mjög þreytt enda tók ég mjög vel á því. Æ hvað mér líður vel núna. Undir teppi, kertaljós og tebolli. aaaaahhhhhh….

Vigtaði mig í ræktinni áðan. Var 77,6 kg. Ætli það verði ekki að vera opinber tala þar sem ég missti af vigtun á laugardaginn. Ég er mjög sátt við það. það er 600gr niður. Ég hélt ég væri búin að þyngja mig heil ósköp í stressinu sem fylgir því að byrja í nýrri vinnu, en það er allavega ekki komið á mig ennþá!

Ummæli (3) »

Endalausa kvefið

Það virðist ætla að vera ómögulegt að ná úr mér afgangnum af flensunni. Mér er nú eiginlega batnað, ekki með hita eða hálsbólgu, en kvefið ætlar ekki að fara neitt. Er búin að vera stífluð núna á þriðju viku og er ekki mjög glöð með það..
Það gengur allt annars sinn vanagang. Var vigtuð fyrir viku og hafði þá staðið í stað. Reikna ekki með að ég verði farin neitt niður þegar ég vikta mig á morgun. Einhvernveginn er ég eitthvað stöðnuð eftir að hafa lést um kíló á viku þrjár vikur þar á undan. Ég er svosem ekkert óánægð með það fyrst ég er ekki að þyngjast neitt. Byrja í nýrri vinnu á mánudaginn. Er nett stressuð yfir því. Líka yfir því hvernig mér tekst til að halda mataræðinu og að fara í ræktina. Æh, það er alltaf smá erfitt þegar rútínan breytist hjá manni og maður þarf að finna nýjan takt.. Hafið það gott um helgina dömur!

Ummæli (3) »