Komin á ról

Mikið var frábært að komast í ræktina í gær. Ég var alveg komin með myglubletti eftir þessi veikind hehehe. Ótrúlega hressandi að svitna, verða móð og rauð í framan, reyna á alla vöðva eins og maður getur og slaka vel á á eftir. Yndisleg tilfinning sem ekkert toppar. Ætla samt að fara að ykkar ráðum og fara mér hægt. Fer því ekkert í dag, fer bara aftur á morgun. Ætla ekki að hætta á neitt! Vigtun á morgun, vona að ég sé í góðum málum. Verð sátt ef ég stend í stað því ég er nú búin að vera afskaplega “góð” við mig í þessum veikindum. Ég á alltaf svo svakalega bágt.. þið skiljið..
Ég er alveg afskaplega glöð að vera að hressast, takk stelpur fyrir góðu ráðin og allt peppið!

4 svör hingað til »

  1. 1

    E sagði,

    Farðu vel með þig og eigðu góða helgi ;)

  2. 2

    Assa (Auður) sagði,

    Gleður mig að þú sért komin á ról og farin í ræktina á fullu :D
    En passaðu þig samt að verða ekki veik aftur og
    Góða helgi

  3. 3

    Elsa Hlín sagði,

    Takk fyrir innlitið dúllan mín og gangi þér vel.
    Knús og kveðja

  4. 4

    Elsa Hlín sagði,

    Flott mynd á síðunni minni


Ummæli RSS · TrackBack URI

Say your words