Er ennþá veik..
Hélt að þetta ætti bara að vera smá hásbólga, en nei.. úr þessu varð sko almennileg flensa og ég hef ekki komist í leikfimi síðan á fimmtudaginn í síðustu viku. Missti af tímanum á laugardaginn þegar vigtunin var og þar sem ég á enga vigt sjálf þá veit ég ekki hver staðan er nákvæmlega. Það er ferlega óþægilegt. En ég vigta mig óformlega á morgun því þá ÆTLA ég að mæta í leikfimi. Formleg vigtun er svo á laugardaginn næsta.
hóst á meðan
Átaksgellan sagði,
febrúar 21, 2007 @ 1:36 pm
Láttu þér batna, þetta er algjör skítapest – er búin með hana sem betur fer! En vá, hvað ég kannast við það að byrja á einhverju af fullum krafti og hræðast svo einhvern veginn að klára það því hvað tekur þá við? En við verðum bara extra duglegar, ég þarf líka að missa 8-10 kíló fyrir sumarið svo við stöndum saman í þessu.
Gangi þér vel skvísa!
Kv, Á.
Assa (Auður) sagði,
febrúar 21, 2007 @ 2:31 pm
Æ láttu þér nú batna vinan … það er ekkert eins ömulegt að vera með flensu og gángi þér vel í vituninni á laugardaginn.
elvira sagði,
febrúar 23, 2007 @ 12:09 am
Láttu þér nú batna og passaðu þig bara að fara ekki of geist í ræktina/leikfimina. Lenti sko illa í því. Vonandi sérðu líka bara flotta tölu á vigtinni þar.