Undanfarið hef ég verið að hugsa mikið um hvað ég á mikinn tíma eftir í þessu átaki mínu. Hann styttist eitthvað svo hratt núna að ég er komin með smá svona stress tilfinningu í magann. Ég ætlaði að vera búin fyrir þrítugsafmælið mitt sem er fjórða júní. Maí verður semsagt síðasti mánuðurinn. Ég á semsagt þrjá mánuði eftir og 8 kg. Hef verið að hugsa mikið “hvað ef þetta tekst ekki” og þannig. Ég held ég hafi líka slakað á í mataræðinu undanfarið.
Ég hef verið dálítið gjörn á það síðustu ár að klára ekki hluti sem ég hef ætlað mér að klára. Einhvernveginn á endasprettinum hef ég sjálf ómeðvitað/meðvitað eyðilagt með einhverju móti fyrir mér. Þetta er einhverskonar hræðsla við að klára hluti eða geta ekki klárað hluti eða kanski bara finnst mér ég ekki eiga skilið að takast eitthvað, sjálfstraustið og sjálfsálitið hefur ekki alltaf verið upp á sitt besta.
Ég ætla ekki að láta þetta koma fyrir í þetta skiptið. Þessvegna hef ég ákveðið að taka mig sérstaklega vel á í sambandi við mataræðið mitt þangað til átakinu líkur. Þetta verður svona hert átak.. Hreyfingin er í fínu standi og ekkert út á hana að setja, en það hefur lítið að segja að hreyfa sig ef maður er ekki að borða vel. Þannig að ég ætta framvegis að borða vel og vera dugleg. Sjálfstraustið er mun betra en það hefur áður verið. Ég er sko alveg frábær og verð ennþá meiri gella eftir þrjá mánuði hehehe :o)
e sagði,
febrúar 19, 2007 @ 3:01 pm
Iss þú getur þetta auðveldlega, þú klárar þetta með stæl!!!!
Hvort sem þú verður búin að missa þessi 8kg eða ekki ertu samt sigurvegari, mundu það.
Og gangi þér áfram svona vel
Assa (Auður) sagði,
febrúar 19, 2007 @ 4:18 pm
þÚ GETUR ÞETTA ekki spurning :) Bara vera jákvæð og taka einn dag fyrir í einu :) og þetta kemur allt enda 3 mánuðir (heilir eftir) Ég skal allveg skipta við þig he he he ég á sko miklu miklu meira eftir.
Gángi þér vel og veit að þú getur þetta.
Sigríður Hjördís sagði,
febrúar 19, 2007 @ 7:50 pm
Þú getur alveg klárað þetta, ekki spurning. Treystu og trúðu og þig og vertu samkvæm sjálfri þér. Mundu samt líka að heimurinn mun ekki farast þótt að þú náir ekki takmarkinu, þú verður þó komin nær markmiðinu, ekki spurning.