já ég er sko ekki búin að liggja í leti í dag!
Skellti mér í stafgöngu áðan. Tók verulega á því enda gangan öll upp í móti, upp gamlan fjallveg. Mjög skemmtileg ganga og rosalega fallegt útsýni. Eftir að niður var komið skellti ég mér í sundlaugina. Það var samt meira af neyð en áhuga því sturtan hérna er biluð. En það var mjög notalegt að slaka á heitu pottunum eftir gönguna.
Mataræðið er búið að vera fínt síðustu daga, fyrir utan gærdaginn þegar ég fór í afmæli. Þar var boðið uppá svo glæsilegar kræsingar að ég fékk þær ekki staðist.. og langaði ekkert til að standast þær :o) Borðaði ekkert á mig gat, fékk mér bara lítið af hverju. Það er alveg liðin tíð að ég borði mig það sadda að mér líði hreinlega illa af. Ég er ekki hömlulaus eins og ég var einusinni. Sem betur fer… batnandi konum er best að lifa, ekki satt :o)
Archive for ágúst, 2006
Aktív á Sunnudegi
Fríhafnarnammi :(
Bróðir minn kom heim frá Belgíu í gær og keypti auðvitað helling af nammi í fríhöfninni. Borðaði soldið af því með honum í gærkvöldi. úbbs.. borðaði ekkert svakalega mikið. hefði örugglega einhverntíman misst mig ofaní nammiskálina en ég fór nú soldið pent í þetta núna.
Fyrir utan þetta smá hliðarspor er ég búin að vera mjög dugleg að halda mig frá óhollustunni. Er bara mjög ánægð með það. Er samt orðin ansi óþolinmóð að bíða eftir að byrja á fullum krafti í þessu.. hlakka mjög mikið til að fara heim.
Takk til ykkar sem nennið að lesa þetta og kommenta hjá mér, það er æðislegt að lesa það sem þið skrifið og mér finnst mjög gott að vita að einhver er að fylgjast með mér. Það gefur hellings aðhald. Gaman líka að fylgjast með ykkur.
Hafið það gott :)
Sól sól skín á mig :)
Aaaahh… Þvílík og önnur eins veðurblíða búin að vera undanfarna viku. Algjörlega yndislegt veður! Fínt að fá svona veðurblíðu áður en vetrar rútínan fer af stað.
Annars er allt fínt að frétta af mér og mínu. Lífið gengur sinn vanagang og ég hlakka til að komast heim til mín til þess að geta ýtt átakinu mínu aftur á fullt skrið. Ég ætla að byrja á því að skrá mig í námskeið hjá hreyfingu. Ég hef farið á svoleiðis námskeið áður, síðasta haust, og mér fannst það alveg frábær og ég var mjög dugleg. Það kom mér virkilega í rétta gírinn þá og ég vona að svo verði líka núna. Það er mikið aðhald í þessum námskeiðum og nauðsynlegt að hafa einhvern stað og tíma til að mæta á svona rétt á meðan maður er að komast í gang. Það er sko lesið upp í hverjum tíma og eins gott fyrir mann að skrópa ekki! Agi er það sem maður þarf og agi er það sem maður fær. Mér finnst líka best að vikta mig alltaf i ræktinni. þessvegna verða ekki birtar neinar formlegar tölur fyrr en námskeiðið byrjar. Enda er ég ekki að missa nein kíló þessa dagana, meira svona nokkur grömm. En ég er alveg sátt svo lengi sem það bætist ekki á. Ég hef verið mjög dugleg hingað til að halda því sem ég hef náð. Aldrei, í heilt ár, hefur talan farið upp! Húrra fyrir því (og 7-9-13)
Maginn kominn í samt lag
jæja, ég er búin að jafna mig í maganum eftir átökin um daginn. Fór allt í mínus. Matarlystin er alveg komin á fullt swing, eiginlega aðeins of mikið. Líkaminn vill greinilega eitthvað bæta upp næringarleysið undanfarna daga. Ég hef samt verið dugleg að gefa honum bara eitthvað holt og gott. hef ekki dottið í neitt sukk sem betur fer :)
Ég hlakka mjög mikið til þegar ég get farið að elda handa sjálfri mér aftur. Ég er búin að vera úti á landi að vinna í allt sumar og ekki í aðstöðu til að elda ofan í sjálfa mig. Ég fæ mjög góðan mat samt og alls ekkert óhollan en auðvitað er alltaf eitthvað sem ég myndi gera öðruvísi ef ég væri að elda sjálf. Ég fer heim í lok mánaðarins og þá get ég farið að gera þetta almennilega. Ég hlakka svo tiiiil!!!!! Úff hvað það er erfitt að vera ekki heima hjá sér í langan tíma. Sakna auðvitað kallsins míns mest…….. ég er ekki þessi long-distance-relationship-type-of-girl ég er meira svona hands on :)
Góða menningarnótt
Vekindi
Ég lá í mígreniskasti í allan gærdag. Var vægast sagt ömurlegur dagur. Rosalegur höfuðverkur og uppköst á hálftíma fresti. Borðaði ekki neitt fyrr en um kvöldið en þá nartaði ég í chili con carne á tortillu.. Vaknaði svo aftur með höfuðverk í morgun en hann er sem betur fer farinn og ég mætt í vinnuna. Ætlaði að vera voða dugleg í morgun og taka smá stafgöngu en hafði ekki heilsu til. Kanski ég skelli mér í kvöld í staðinn ef ég verð í stuði eftir vinnudaginn.
Annars bara bið ég að heilsa ykkur fáu sem kíkið hingað inn. hafið það gott
:)
Dagurinn í dag..
..byrjaði á vínarbrauðum! Og ekki bara vínarbrauðum heldur hnetuvínarbrauðum sem eru sko algjörlega uppáhaldið mitt. nammmmmm…. Ég keypti mér samt ekkert vínarbrauð heldur fór ég á starfsmannafund í vinnunni í morgun og þá var þetta á boðstólnum. hafði ekki fengið svona í ár og aldir og bara datt ekki í hug að sleppa því. Ohhh hvað þau voru góð.
Það gengur samt ekki að bjóða uppá svona á starfsmannafundum. Afhverju þarf alltaf að kaupa eitthvað svona svakalega óholt?? Eitt hnetuvínarbrauð jafnast á við SJÖ brauðsneiðar í hitaeiningum… SJÖ!! mér finnst það rosalegt. Ég hef aldrei borðað sjö brauðsneiðar í einu..
Ég hef nú verið ansi slöpp að passa upp á mataræðið núna í sumar. Ætla að byrja á því af hörku 1. september þegar ég verð komin heim til mín. Gengur ekkert þegar maður eldar ekki ofan í sig sjálfur. Ekki það að ég hafi verið að bæta neitt ám mig, þvert á móti hef ég misst þrjú kíló í sumar… sem er nú samt ekkert svakalega mikið heheh
Átakið mitt
Vá, ég var næstum búin að gleyma að ég væri búin að koma mér upp þessu bloggi. Næstum..
Fyrir akkúrat ári síðan, eða í byrjun september 2005, þá tók ég stóra ákvörðun. Ég ákvað að þegar ég yrði þrítug þá ætlaði ég að vera 30 kílóum léttari. Fara úr 100kg niður í 70kg án þess að fara í megrun. Í dag, um það bil ári síðar er ég orðin 87kg. Búin að léttast um 13kg. Þennan tíma hef ég breytt mjög miklu í sambandi við hugarfar mitt varðandi heilsuna, mataræði og hreyfingu. Ég hreyfi mig mikið meira núna en ég gerði og borða mun fituminni mat og minni skég mmta en ég gerði. Ég borða samt allt sem ég vil. Meira að segja franskar eru leyfilegar. Ég hef hinsvegar aðeins 5 sinnum fengið mér franskar á þessu ári sem er liðið. Það er stór breyting frá því sem var hérna í den…
Það sem mér finnst skemmtilegast við þetta allt saman er öll hreyfingin. Ég er mikið íþróttafrík þó ég kanski beri það ekki utan á mér allan daginn. Mér finnst svo gaman að vera í betra formi, geta gengið og jafnvel skokkað einhverjar vegalengdir án þess að deyja bara. Svo hef ég líka uppgvötað stafgöngu. Hún er mjög skemmtileg og gerir alveg helling fyrir mig. Líkamlega formið skiptir mig mun meira máli en einhver kílóa tala og mun ég einbeita mér mest að því að komast í enn betra form.. og þá fjúka kílóin væntalega í leiðinni.. eða kanski ekki fjúka heldur hægt og sígandi láta sig hverfa. Þið fattið hvað ég meina
Afmælisdagurinn minn er fjórði júní. Fyrir þann tíma ætla ég að vera 17 kg léttari og í góðu líkamlegu formi. Ég ætla að halda veislu á afmælisdaginn og kaupa mér æðislegan kjól og vera svakaleg skutla!
Ég hef ekkert bloggað um átakið mitt hingað til en hlakka til að gera það framvegis. Þó svo að það sé að mestu mér til skemmtunar þá er það líka ætlað til að halda mér við efnið. Ég ætla sko ekki að klikka á þessu á endasprettinum!