Í lok átaks

Jæja,
Þá er afmælisdagurinn minn liðinn, ég orðin þrítug og formlega er átakið mitt búið.
Ég náði markmiðinu mínu. Ég hélt afmælisveisluna með pompi og prakt í fína fína kjólnum mínum. Það var æðislegt! það er gott að þessi dagur er liðinn.. einu og hálfu ári eftir að ég byrjaði átakið mitt.. fyrir 25 kílóum síðan :o)

Ég er samt ekki dottin í sukkið. Er á fullu að æfa fyrir Reykjavíkurmaraþonið þar sem ég stefni á 10km. Er búin að vera mjög dugleg í skokkinu undanfarnar vikur. Ég fyrradag fór ég 7km á 43 mínútum sem ég er mjög ánægð með. Það er gaman að vera létt á fæti :o)
Hafið það gott í sumar!

Comments (1) »

Þreytt

jæja, nú er ég opinberlega hætt að vera kvefuð. Þótt fyrr hefði verið. Snýtti mér bara einu sinni í morgun og svo bara ekki neitt meir í dag! Skemmtilegar upplýsingar, ég veit :-)

Hjá mér gengur bara allt í haginn. Var í geggjuðum tíma í ræktinni áðan, sem heitir þrek. Er það sama og body pump en heitir þrek í minni rækt. Ég er mjög þreytt enda tók ég mjög vel á því. Æ hvað mér líður vel núna. Undir teppi, kertaljós og tebolli. aaaaahhhhhh….

Vigtaði mig í ræktinni áðan. Var 77,6 kg. Ætli það verði ekki að vera opinber tala þar sem ég missti af vigtun á laugardaginn. Ég er mjög sátt við það. það er 600gr niður. Ég hélt ég væri búin að þyngja mig heil ósköp í stressinu sem fylgir því að byrja í nýrri vinnu, en það er allavega ekki komið á mig ennþá!

Ummæli (3) »

Endalausa kvefið

Það virðist ætla að vera ómögulegt að ná úr mér afgangnum af flensunni. Mér er nú eiginlega batnað, ekki með hita eða hálsbólgu, en kvefið ætlar ekki að fara neitt. Er búin að vera stífluð núna á þriðju viku og er ekki mjög glöð með það..
Það gengur allt annars sinn vanagang. Var vigtuð fyrir viku og hafði þá staðið í stað. Reikna ekki með að ég verði farin neitt niður þegar ég vikta mig á morgun. Einhvernveginn er ég eitthvað stöðnuð eftir að hafa lést um kíló á viku þrjár vikur þar á undan. Ég er svosem ekkert óánægð með það fyrst ég er ekki að þyngjast neitt. Byrja í nýrri vinnu á mánudaginn. Er nett stressuð yfir því. Líka yfir því hvernig mér tekst til að halda mataræðinu og að fara í ræktina. Æh, það er alltaf smá erfitt þegar rútínan breytist hjá manni og maður þarf að finna nýjan takt.. Hafið það gott um helgina dömur!

Ummæli (3) »

Komin á ról

Mikið var frábært að komast í ræktina í gær. Ég var alveg komin með myglubletti eftir þessi veikind hehehe. Ótrúlega hressandi að svitna, verða móð og rauð í framan, reyna á alla vöðva eins og maður getur og slaka vel á á eftir. Yndisleg tilfinning sem ekkert toppar. Ætla samt að fara að ykkar ráðum og fara mér hægt. Fer því ekkert í dag, fer bara aftur á morgun. Ætla ekki að hætta á neitt! Vigtun á morgun, vona að ég sé í góðum málum. Verð sátt ef ég stend í stað því ég er nú búin að vera afskaplega “góð” við mig í þessum veikindum. Ég á alltaf svo svakalega bágt.. þið skiljið..
Ég er alveg afskaplega glöð að vera að hressast, takk stelpur fyrir góðu ráðin og allt peppið!

Ummæli (4) »

hóst

Er ennþá veik..
Hélt að þetta ætti bara að vera smá hásbólga, en nei.. úr þessu varð sko almennileg flensa og ég hef ekki komist í leikfimi síðan á fimmtudaginn í síðustu viku. Missti af tímanum á laugardaginn þegar vigtunin var og þar sem ég á enga vigt sjálf þá veit ég ekki hver staðan er nákvæmlega. Það er ferlega óþægilegt. En ég vigta mig óformlega á morgun því þá ÆTLA ég að mæta í leikfimi. Formleg vigtun er svo á laugardaginn næsta.
hóst á meðan

Ummæli (3) »

Spark í rass

Undanfarið hef ég verið að hugsa mikið um hvað ég á mikinn tíma eftir í þessu átaki mínu. Hann styttist eitthvað svo hratt núna að ég er komin með smá svona stress tilfinningu í magann. Ég ætlaði að vera búin fyrir þrítugsafmælið mitt sem er fjórða júní. Maí verður semsagt síðasti mánuðurinn. Ég á semsagt þrjá mánuði eftir og 8 kg. Hef verið að hugsa mikið “hvað ef þetta tekst ekki” og þannig. Ég held ég hafi líka slakað á í mataræðinu undanfarið.

Ég hef verið dálítið gjörn á það síðustu ár að klára ekki hluti sem ég hef ætlað mér að klára. Einhvernveginn á endasprettinum hef ég sjálf ómeðvitað/meðvitað eyðilagt með einhverju móti fyrir mér. Þetta er einhverskonar hræðsla við að klára hluti eða geta ekki klárað hluti eða kanski bara finnst mér ég ekki eiga skilið að takast eitthvað, sjálfstraustið og sjálfsálitið hefur ekki alltaf verið upp á sitt besta.

Ég ætla ekki að láta þetta koma fyrir í þetta skiptið. Þessvegna hef ég ákveðið að taka mig sérstaklega vel á í sambandi við mataræðið mitt þangað til átakinu líkur. Þetta verður svona hert átak.. Hreyfingin er í fínu standi og ekkert út á hana að setja, en það hefur lítið að segja að hreyfa sig ef maður er ekki að borða vel. Þannig að ég ætta framvegis að borða vel og vera dugleg. Sjálfstraustið er mun betra en það hefur áður verið. Ég er sko alveg frábær og verð ennþá meiri gella eftir þrjá mánuði hehehe :o)

Ummæli (3) »

*hóst*

Það fór eins og ég spáði. Ég er komin með þessa líka fínu hálsbólgu og hósta og er orðin raddlaus í þokkabót. Skemmtilegt ástand. Ég sleppi því hjólatímanum í dag og er hundfúl yfir því.. Vona að ég verði hressari á morgun svo ég komist í tímann í fyrramálið. Maður verður að vona!
Takk fyrir að kíkja hingað og hafið það gott í kvöld :o)

Ummæli (3) »

Þreytt

Ég er svakalega þreytt. Var í ræktinni áðan. Mikil brennsla í hröðum og skemmtilegum pallatíma. Alveg frábært að fara í svona tíma, alveg geggjað stuð. Ég var með svo miklar harðsperrur eftir allar armbeygjurnar sem ég gerði á þriðjudaginn en eftir tímann áðan eru þær allar að skána.
Er komin með einhvern skít í hálsinn og þyngsli í hausinn og grunar að ég sé búin að næla mér í flensu. Hef alltaf verið duglega að ná mér í flestar þær flensur sem ganga.. Vona að þessi verði ekki merkileg, jafnvel bara sýnishorn. Vona allavega að ég verði nógu góð til að fara í hjólatímann á morgunn. Nú ætla ég hinsvegar að fara að sofa :)

Ummæli (2) »

Vangaveltur

Mér finnst svo merkilegt hvernig maður virkar, til dæmis í sambandi við svona átak að létta sig. Hvernig stendur eiginlega á því að maður er svona fljótur að gagnrýna sjálfan sig ef maður tekur eitt lítið hliðarspor? Maður sýnir öllum í kring um sig mikinn skilning og peppar upp þá sem þurfa á því að halda en svo þegar maður sjálfur þarf á peppi að halda þá getur maður engan veginn stólað á skilning frá sjálfum sér eða stuðning. Maður verður strax ómögulegur og getur aldrei gert neitt rétt og þar fram eftir götunum.
Ég held að til þess að ná góðum árangri í svona átaki og bara örugglega flestu sem maður gerir þá þurfi maður að vera sinn eiginn besti vinur. Sýna sjálfri sér skilning og hugsa jákvætt til manns sjálfs. Hrósa sjálfri sér, peppa sig upp og gefa sjálfri sér prik fyrir allan þann góða árangur sem maður hefur náð. Maður verður að muna eftir sigrunum og læra af mistökunum, ekki hanga í þeim. Þetta er ótrúlega erfitt en þetta er mesta breytingin sem ég hef gert á mér í þessu átaki. Smám saman er ég að breyta því hvernig ég hugsa um mig og þá verður allt hitt sem fylgir miklu auðveldara. Eftir því sem manni þykir meira vænt um sjálfan sig því auðveldara er að hugsa vel um sjálfan sig og gera sjálfri sér gott.

Leave a comment »

Vigtun vikunnar

Vigtin í gær sýndi 1,2 kg niður!
Ég er í skýjunum með það. Það þýðir að síðustu þrjár vikur hef ég lést um 3 kg! jibbý!! Algjört æði..
bakaði í gær alveg ótrúlega góða súkkulaðiköku. Mig langaði ekkert í allt nammið sem ég var búin að láta mig dreyma um síðustu daga. Súkkulaðikakan var alveg nóg, og meira en það. Ég er í súkkulaðihimnaríki þessa stundina :o)

Ummæli (5) »